Boðið verður uppá 9 einkatími hjá Eyrúnu Ýr Pálsdóttur.
Eyrún Ýr Pálsdóttir er úrskrifaður tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Eyrún hefur verið ötul á keppnisbrautinni. Hún er margfaldur Íslandsmeistari og fyrsta konan til að vinna landsmót í A-flokki á Hrannari frá Flugumýri II. Skráning fer fram á Sportabler HÉR
Stjórn óska eftir fólki sem vilja leggja hönd á plóg í félagsstarfi Ljúfs.
Margar öflugar nefndir starfa í Ljúfi og erum við öllum þeim sjálfboðaliðum þakklát fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Alltaf er pláss fyrir gott fólk!! Þið sem hafa áhuga á að vera með í félagsstarfinu, hvort sem það er að skrá sig í nefndir eða ef þið eru með hugmyndir sem ykkur langar að koma á framfæri vinsamlega sendið póst á h.ljufur@gmail.com eða hægt er að ræða við Ragnhildi í síma 8651945 Stjórn Heitavatnslaust er vegna viðgerðar.Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust við Vorsabæjarvelli mið 27. september 09:00 - 21:00. Sjá nánar á korti.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Búið er að setja merkingar í reiðgerðið uppí dal. Þökkum við Þráni Ævarsyni og Stáliðjunni fyrir þessa rausnarlegu gjöf.
Stáliðjan.is og Stáliðjan á Facebook Fyrra sumarnámskeiði Ljúfs hjá Coru á Bjarnastöðum lauk á föstudaginn. Námskeiðið var vel heppnað og krakkarnir einstaklega heppnir með veður alla dagana. Þau lærðu og upplifðu ýmislegt á þessari viku, m.a. mismunandi ásetu, fóru í gegnum þrautabraut, reiðtúr, fjallaferð og æfðu sig að sitja berbakt.
Örfá laus pláss eru eftir á seinna námskeiðið sem verður vikuna 26.-30. júní. Skráning á https://www.sportabler.com/shop/hfl Firmakeppni Ljúfs var haldin að Vorsabæjarvöllum í sannkölluðu blíðskaparveðri, föstudaginn 16. júní. Það var frábær þátttaka og létt yfir bæði knöpum, hestum og áhorfendum. Eftir mótið var kveikt upp í grillinu og samveru notið í félagsheimilinu. Við þökkum öllum þeim fyrirtækjum sem styrktu mótið. Meðfylgjandi eru úrslit: Pollar teymdir: Egill Thor 8 ára og Dökk Freyja Maren 4 ára og Krummi Auður Eir og Gyðja frá Kaðlastöðum, 27 vetra Ásrún Ynja 4 ára og Lúkas frá Miðey, 19 vetra Karen Sif 5 ára og Úlfur frá Gerði, 25 vetra Þór Júlí 7 ára og Sandra frá Kringlu, 11 vetra Kolfreyja Von 8 ára og Villi Stjarni frá Ártúnum, 28 vetra Pollar ríðandi: Amanda Björt 8 ára og Slaufa frá Reykjavík, 27 vetra Sigríður Sif 4 ára og Gyðja frá Kaðlastöðum, 27 vetra Erla María 6 ára og Frosti frá Kringlu II, 9 vetra Hrefna Kristín 8 ára og Ysta-Nöf frá Gígjarhól, 27 vetra Barnaflokkur: 1. sæti: Aníta Liv Snævarsdóttir og Eldur frá Hólum, 14 vetra rauður 2. sæti: Hrafnhildur Þráinsdóttir og Askja frá Efri-Hömrum, 18 vetra rauðblesótt 3. sæti: Talia Guðjónsdóttir og Djásn frá Eyvindarhólum 1, 25 vetra rauðstjörnótt Unglingaflokkur: 1. sæti: Aníta Liv Snævarsdóttir og Assa frá Bæjarholti, 18 vetra brún 2. sæti: Viktor Dofri Halldórsson og Melodía frá Ólafsbergi, 14 vetra brún Ungmennaflokkur: 1. sæti: Jónína Baldursdóttir og Klerkur frá Kópsvatni, 7 vetra rauður 2. sæti: Lisa Ruckriegel og Lotta frá Lækjateigi, 14 vetra bleikstjörnótt Kvennaflokkur: 1. sæti: Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir og Gló frá Syðri-Gröf, 14 vetra rauðblesótt 2. sæti: Jónína Baldursdóttir og Óðinn frá Kirkjuferju, 15 vetra jarpur 3. sæti: Þórunn Bjarnadóttir og Rúsína frá Ásmúla, 18 vetra sótrauð 4. sæti: Linda Sif Brynjarsdóttir og Hjörvar frá Stafholtsveggjum, 14 vetra bleikstjörnóttur 5. sæti: Sif Jónsdóttir og Hrannar frá Reykjavík, 16 vetra bleikálóttur 6. sæti: Mikkalína Mekkín Gísladóttir og Stormur frá Langafossi, 20 vetra móálóttskjóttur Aðrir keppendur: Yvonne Tix og Fiðla frá Lækjarteigi, 13 vetra brún Ragnhildur Gísladóttir og Þór frá Grenstanga, 10 vetra brúnn Lovísa Bragadóttir og Öskubuska frá Ökrum, 7 vetra grá Guðrún Hulda Pálsdóttir og Dyggð frá Fjalli, 20 vetra rauð Sabine Bernholt og Piltur frá Herríðarhóli, 10 vetra rauðstjörnóttur Sunna Líf Hafþórsdóttir og Taktálfur frá Ólafsbergi, 15 vetra brúnn Karlaflokkur: 1. sæti: Snorri Jón Valsson og Myrkvi frá Vindási, 7 vetra brúnn 2. sæti: Halldór Fannar Ólafsson og Kraflar frá Ólafsbergi, 18 vetra brúnn 3. sæti: Jóhann Pétur Jensson og Soldán frá Steinnesi, 6 vetra brúnn 4. sæti: Þráinn Ævarsson og Askja frá Efri-Hömrum, 18 vetra rauðblesótt 5. sæti: Guðjón Häsler og Maístjarna frá Vík, 8 vetra rauðblesótt Heldri knapar (60+):
1. sæti: Ása Kristín Knútsdóttir og Lotta frá Lækjarteigi, 14 vetra bleikstjörnótt Opnað verður fyrir beit í dalnum fimmtudaginn 22. júní fyrir félagsmenn sem fengu úthlutað hólf.
Við minnum á að þessi beitarhólf eru aðeins fyrir reiðhross í brúkun. Kveðja, Beitarnefnd. Hestamannafélagið Geysir hélt opið Gæðingamót á Rangárvöllum 10-11 júní.
Ljúfur átti tvo efnilega keppendur á mótinu í barna- og ungmennaflokki: Hrafnhildur Þráinsdóttir varð í 18. sæti í forkeppni í Gæðingarflokki barna og 8. sæti í Gæðingartölfi barna á Öskju frá Efri-Hömrum. Jónína Baldursdóttir keppti á Óðni frá Kirkjuferu í B flokki ungmenna og varð í 3. sæti í forkeppni en vann sig upp í 2. sæti í A-úrslitum. Við óskum þessum flottu knöpum til hamingju! Virkilega gaman að sjá og heyra af Ljúfsfélögum á keppnisbrautinni. Beitarhólf á Engjum opnar 17. júní fyrir félagsmenn sem sóttu þar um og fengu úthlutað.
Umsjónarmaður Engjastykkis er Sabine 8492931. Við minnum á að láta umsjónarmenn hólfa vita þegar hross eru sett í beitarhólfin. Bestu kveðjur, Beitarnefnd |
Viltu:
Ganga í Ljúf? Aðstoða í nefnd? breyta netfangi eða síma? fá aðgang að Worldfeng?Sendu tölvupóst á: h.ljufur@gmail.com |