Námskeiðið er haldið á Sólvangi við Eyrarbakka en þar fá þátttakendur að gera sitt eigið skraut á hestinn undir leiðsögn. Flestir velja að gera ennisól með kristals steinum (og miðast verðið við það) en einnig er í boði að gera t.d. hundaól, múl, hnakkaskraut, armbönd og fleira. Auðvitað fær hver og einn að taka með sér heim það sem hann hefur gert og möguleiki er að kaupa höfuðleður og múla í stíl. Námskeiðið tekur um tvær klukkustundir og hentar flestum frá 10 ára aldri (en mögulegt er að vera yngri í fylgd fullorðinna).
Boðið verður uppá tvö námskeið mánudaginn 4 des. kl 16:00-18:00 kl 18:00- 20:00 Skráning á Sportabler Fræðslukvöld verður haldið í félagsheimili Ljúfs Miðvikudaginn 6. desember kl 19:30.
En til okkar kemur fóðurfræðingurinn Einar Ásgeirsson og fræðir okkur um fóðrun hrossa. Einar Ásgeirsson er fóðurfræðingur Fóðurblöndunnar. Tók Bs. Nám í hestafræði við LBHÍ og Háskólann á Hólum og tók Meistaranám í fóðurfræði við Landbúnaðarhaskóla Svíþjóðar, SLU. Hann hefur unnið hjá Fóðurblöndunni frá 2017. Auk þess er hann kynbótadómari og járningamaður í hjáverkum. Frítt inn fyrir Ljúfsfélaga en 2000 kr fyrir utanfélagsfólk Skráning fer fram á SportAbler Stefnir þú á að keppa á Landsmóti fyrir Hestamannafélagið Ljúf ?
Landsmót verður haldið á félagssvæði Fáks í Víðidal dagana 1-7 júlí 2024 Okkur langar að halda vel utan um hópinn sem hyggst keppa og langar okkur því að komast í sambandi við þau börn, unglinga og ungmenni, sem hafa áhuga á því. Hugmyndin er að bjóða uppá æfingar og ýmislegt skemmtilegt. Nánari upplýsingar fljótlega - mikilvægt að skrá sig sem fyrst svo við getum byrjað að vinna að undirbúningi! Sendið email sem allra fyrst á h.ljufur@gmail.com Einnig ef þú er foreldri eða langar að vera með í að halda utan um hópinn þá máttu endilega senda okkur línu líka. Boðið verður uppá 9 einkatími hjá Eyrúnu Ýr Pálsdóttur.
Eyrún Ýr Pálsdóttir er úrskrifaður tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Eyrún hefur verið ötul á keppnisbrautinni. Hún er margfaldur Íslandsmeistari og fyrsta konan til að vinna landsmót í A-flokki á Hrannari frá Flugumýri II. Skráning fer fram á Sportabler HÉR
Stjórn óska eftir fólki sem vilja leggja hönd á plóg í félagsstarfi Ljúfs.
Margar öflugar nefndir starfa í Ljúfi og erum við öllum þeim sjálfboðaliðum þakklát fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Alltaf er pláss fyrir gott fólk!! Þið sem hafa áhuga á að vera með í félagsstarfinu, hvort sem það er að skrá sig í nefndir eða ef þið eru með hugmyndir sem ykkur langar að koma á framfæri vinsamlega sendið póst á h.ljufur@gmail.com eða hægt er að ræða við Ragnhildi í síma 8651945 Stjórn Heitavatnslaust er vegna viðgerðar.Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust við Vorsabæjarvelli mið 27. september 09:00 - 21:00. Sjá nánar á korti.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Búið er að setja merkingar í reiðgerðið uppí dal. Þökkum við Þráni Ævarsyni og Stáliðjunni fyrir þessa rausnarlegu gjöf.
Stáliðjan.is og Stáliðjan á Facebook Fyrra sumarnámskeiði Ljúfs hjá Coru á Bjarnastöðum lauk á föstudaginn. Námskeiðið var vel heppnað og krakkarnir einstaklega heppnir með veður alla dagana. Þau lærðu og upplifðu ýmislegt á þessari viku, m.a. mismunandi ásetu, fóru í gegnum þrautabraut, reiðtúr, fjallaferð og æfðu sig að sitja berbakt.
Örfá laus pláss eru eftir á seinna námskeiðið sem verður vikuna 26.-30. júní. Skráning á https://www.sportabler.com/shop/hfl |
Viltu:
Ganga í Ljúf? Aðstoða í nefnd? breyta netfangi eða síma? fá aðgang að Worldfeng?Sendu tölvupóst á: h.ljufur@gmail.com |