Gæðingamót Sleipnis, Ljúfs og Háfeta og úrtaka fyrir Landsmót 2022 fer fram dagana 4.-6. júní næstkomandi á Brávöllum á Selfossi.
Skráning er hafin á www.sportfengur.com og stendur til og með sunnudeginum 29.maí. Boðið er upp á tvær umferðir og verður fyrirkomulagið eftirfarandi: Laugardagur 4.júní – Fyrri umferð í úrtöku í öllum greinum auk C-flokks og A-flokks Ungmenna. Sunnudagur 5.júní – Seinni umferð í úrtöku. Mánudagur 6.júní (Annar í Hvítasunnu) Úrslit í öllum greinum. Hæsta einkunn gildir til úrslita. Skráningar: Mótið heitir: Gæðingamót og úrtaka á Brávöllum Seinni umferð úrtöku heitir: Úrtaka á Brávöllum – Seinni umferð Skráning í seinni umferð er valkvæð og er skráning í hana opin en hægt er að skrá nú þegar og eftir að fyrri umferð lýkur fram til 20:00 á laugardagskvöldi. Ekki er hægt að skrá hesta eða knapa í seinni umferð hafi þeir ekki tekið þátt í þeirri fyrri. Inn á Landsmót gildir betri árangur hests eða knapa úr báðum umferðum. Keppt verður í eftirfarandi greinum: A flokkur gæðinga – kr. 6000 B flokkur gæðinga – kr. 6000 C flokkur gæðinga (ekki LM grein, aðeins fyrir minna vana, sjá reglur LH) – kr. 6000 Ungmennaflokkur – kr. 4000 Unglingaflokkur – kr. 4000 Barnaflokkur – kr. 4000 Mótanefnd |
Viltu:
Ganga í Ljúf? Aðstoða í nefnd? breyta netfangi eða síma? fá aðgang að Worldfeng?Sendu tölvupóst á: [email protected] |