Umferðarreglur
Það er mikilvægt að knapar þekki umferðarreglur í gerði eða inni á velli. Þær gilda líka í almennri umferð þar sem hesturinn er skilgreindur sem farartæki. Ef farið er að umferðarreglum er komið í veg fyrir árekstra. Öll vinna með hross verður markvissari og árangursríkari, sér í lagi þar sem fleiri en einn eru að vinna í einu.
- Láta vita áður en teymt er inn á völlinn og loka hliðum þegar gengið er inn og út.
- Fetgangur skal riðinn á innri sporaslóð þegar ytri sporaslóð er notuð fyrir aðrar gangtegundir (Fetgangur víkur af ytri sporaslóð fyrir hraðari umferð).
- Tvær hestlengdir milli hesta. Ekki má ríða hlið við hlið eða hafa tvo til reiðar.
- Hægri umferð. Knapi sem ríður á hægri hönd víkur inn á völlinn þegar hann mætir knapa sem ríður á vinstri hönd. (Eins og bílaumferð)
- Knapi sem ríður bauga, á hringnum eða aðrar reiðleiðir inni á vellinum veitir þeim forgang sem ríður allan völlinn.
- Ekki má stöðva á ytri sporaslóð. Best er að stöðva á miðjum vellinum. Þjálfa verður fimiæfingar á innri sporaslóð eða inni á vellinum nema að gert sé samkomulag um annað.
- Hringtaumsvinna víkur fyrir ríðandi umferð nema að gert sé samkomulag um annað.
- Forðast ber að ríða þvert í veg fyrir annan knapa.
- Fylgja ber hefðbundnum reiðleiðum á vellinum.
- Ekki má hafa lausa hesta á vellinum meðan á þjálfun stendur né binda hesta þar.
- Öll þjálfun er á eigin ábyrgð. (Hjálmaskylda).
- Sýnum kurteisi og tillitsemi og forðumst óróa og hávaða. Veitum þeim reiðmönnum forgang sem æfa sérstaklega erfið verkefni eða eiga í erfiðleikum með hest.
- KNÖPUM BER AÐ HREINSA UPP EFTIR HESTANA SÍNA.
- Stökkþjálfun/yfirferðareið er óheimil þegar margir eru inni í höllinni í opnum tímum, sá/sú sem ætlar að þjálfa stökk/yfirferð skal sýna sértakt tillit og skal gæta þess að ríða ekki á aðra hesta og knapa
- Knapar og gestir eru á eigin ábyrgð í höllinni.