Er komin tími til að losa skítahauginn við hesthúsin að Vorsabæjarvöllum?
Tveir vaskið feður taka að sér að tæma skíthauginn fyrir litlar 10þúsund kr á bíl og fer allur ágóðinn (-olía á vörubílinn) til styrkjar krökkunum sem stefna á úrtöku fyrir Landsmót 2024. Krakkarnir mæta á æfingu í Eldhestum í hverri viku undir handleiðslu reiðkennaras Babsý Meyer. Þeir sem vilja nýja sér þessa þjónustu og styrkja krakkana er bent á að senda Ragnhildi skilaboð í síma 865-1945 (eða hringja) Bókleg Knapamerki verða kennd í febrúar/mars og lýkur námskeiðunum með skriflegum prófum.
Allar upplýsingar um Knapamerki er að finna á http://knapamerki.is/ Námskeiðið er opið öllum þeim félagsmönnum er hafa áhuga á að ljúka bóklegu námi í vetur (og verklegu í vor). Kennsla hefst sunnudaginn 25.febrúar. Áætlaðir kennsludagar eru á sunnudögum kl 15:30. Skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja auka þekkingu og færni á skipulagðan hátt. Knapamerkjabækurnar fast td í Líflandi, Ástund og hjá Hólaskóla. ( ATH Nýjustu bækurnar eru allar gormabækur). Áætlað er að verklegi hluti Knapamerkja 1, 2 og 3 verður haldinn eftir páska fyrir þá sem klára bóklega hlutann. Skráning fer fram á sportabler.com og lýkur 29 febrúar. Kennari verður Barbara Meyer (Babsý) Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur í netfangi ragga(hjá)heljuheims.net Aðalfundur Hestamannafélagsins Ljúfs var haldinn í félagsheimilinu að Vorsabæjarvöllum fimmtudaginn 1. febrúar 2024.
Kosið var um þrjú sæti í stjórn félagsins og um einn varamann sjórnar. Erla Björk Tryggvadóttir og Cora Jovanna Claas buðu sig fram í áframhaldandi setu í stjórn til tveggja ára og Snævar Freyr Sigtryggsson til eins árs og hlutu kosningu án mótframboðs. Linda Sif Brynjarsdóttir var ein í kjöri varamanns stjórnar til tveggja ára og bjóðum við hana velkomna. Tilnefningar í nefndir fóru vel fram og flestar nefndir eru vel mannaðar en upplýsingar um nefndir hafa verið uppfærðar hér efst á heimasíðunni. Alltaf er þó pláss fyrir áhugasamt fólk í nefndum og félagsmenn eru hvattir til að hafa samband við nefndarformenn ef áhugi er á samstarfi eða ef upp koma góðar hugmyndir fyrir starfsemi nefndanna. Félagsgjald 2024 var samþykkt á fundinum: Börn 0-9 ára FRÍTT 10-17 ára 3000 krónur, Fullorðna (18-69) 10000 krónur. 70 ára og eldri FRÍTT Aðalfundargerð hefur verið hlaðið upp á heimasíðuna og má finna hana hérna: Aðalfundargerð. Stjórn þakkar fyrir góðan fund og hlakkar til samstarfs við félagsmenn Ljúfs árið 2024. Kröfur vegna félagsgjalda Ljúfs 2024 hafa verið sendar í heimabanka félagsmanna.
Gjalddagi þeirra er 15.febrúar og eindagi 15.mars 2024. Systkynin Sara og Steinar ætla að vera með sýnikennslu í reiðhöll Eldhesta mánudaginn 5 febrúar. Húsið opnað kl 18:30 og sýnikennslan hefst kl 20.
Viðburðurinn er opin öllum. Frítt inn fyrir skuldlausa félagsmenn Ljúfs ásamt 16 ára og yngri en aðrir greiða 2000kr. Hlökkum til að sjá sem flesta. Virkilega vel heppnuð sýnikennsla hjá Helgu Unu Björnsdóttir fór fram i gærkvöldi í reiðhöll Eldhesta. Fjölmenni var í húsinu og almenn ánægja. Við þökkum Helgu Unu fyrir frábæra kennslu og Eldhestum fyrir afnot af þeirri frábæru aðstöðu sem þeir eru með. Við þökkum Tind frá Árdal líka fyrir góða frammistöðu.
Aðalfundur Hestamannafélagsins Ljúfs
Verður haldinn í Félagsheimili Ljúfs, fimmtudaginn 1. febrúar 2024 kl. 20:00. Dagskrá fundarins:
Nú er verið að fara í gegnum félagaskrá Ljúfs og skuldalista félagsmanna, félagsmenn sem enn hafa ekki greitt félagsgjöld 2023 verða teknir af félagaskrá á næstu dögum og lokað verður á WF aðgang þeirra.
Til þess að geta sótt námskeið, nýtt sér Worldfeng aðgang, keppt fyrir hönd félagsins þarf viðkomandi að vera skuldlaus félagi í Hestamannafélaginu Ljúf. Biðjum þau ykkar sem enn hafið ekki greitt fyrir 2023 og ætlið að halda áfram að vera í Ljúf að standa skil fyrir 21 janúar. Boðið verður uppá paratíma hjá Þórdísi Erlu á Grænhól, einhverjar miðvikudaga í vetur, fyrir félagsmenn Ljúfs. Skráning fer fram á Sportabler
Hægt er að breyta paratíma í einkatíma og þar að senda töluvpóst á h.ljufur@gmail.com |
Viltu:
Ganga í Ljúf? Aðstoða í nefnd? breyta netfangi eða síma? fá aðgang að Worldfeng?Sendu tölvupóst á: h.ljufur@gmail.com |